Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Jónína Brá Árnadóttir
  • Netfang: jonina_bra@hotmail.com
  • Staður: Egilsstaðir

Auglýsing

take mo out

13. september 2007 klukkan 10:26
1 dagur í Franz, ég er æst af spenningi!

ætti svo mikið að vera að læra núna, eeen ég bara nenni því ekki! Alltof mikið að gerast þessa dagana.. Sandra og Jóa báðar búnar að eignast litla herramenn, óska þeim hjartanlega til hamingju með það. Er viss um að þeir séu alveg yndislegir báðir tveir, eins og mömmurnar :)

mannfræðin gengur vel, er alltaf að komast að því  meir og meir hvað mér finnst þetta óskaplega skemmtilegt.. sem er jákvætt :)
veit ekki alveg hvað ég var að spá með þessa ansans viðskiptafræði... ;)

en svona getur maður nú verið vitlaus.. ætlaði annars ekki að hafa þetta lengra.. sjáumst á franz

föstudagur til frægðar

24. ágúst 2007 klukkan 14:25

Jæja börnin góð, sit hérna í góðu yfirlæti í Odda.. finnst ég gasalega fullorðin eitthvað að vera byrjuð í háskóla !
Spurning um að blogga aðeins um síðustu daga.. taka punktablogg á þetta..? jáá

  •  síðasta helgi var góð, stelpumatur á egilsstaðabýlinu, voða fancy :)
  • varð full, fyllri og held ég bara fyllst manna... ástandi eftir því daginn eftir, ælandi og spúandi..
  • fór í "fjallgöngu"með henni Bergdísi, náðum upp á Fardagafoss, borðuðum ber og nesti, voða næs
  • búin að koma mér fyrir í fínu, fínu íbúðinni okkar -HRAUNBRAUT1- klárlega aðal staðurinn í vetur, útsýni yfir í perluna, nauthólfsvík og sjóinn, stutt í strætó og alles klar :)
  • von á mjög góðu fólki eftir helgi, svo ég bíð spennt.. orðin soldið lónlí hér í borg óttans!!
  • byrjuð á stærðfræði námskeiði, ekki alveg minn bolli af tei.. svo ég hætti snarlega við viðskiptafræðina og ætla að fara í mannfræði- mjög spennt fyrir því!
  • hahaha.. var svo stoppuð af í kringlunni í gær og spurð hvort ég vildi ekki koma í prufu fyrir einhverjar auglýsingar, hver veit nema ég komi í næstu muu auglýsingu.. Ekki? ;)
  • komin með 2 riiiisa kýli í hálsinn, búin að borða strepsils eins og mér sér borgað fyrir það en ekkert gengur, hef aldrei vitað aðra eins hálsbólgu.. Kann ekki einhver góð ráð við svona andskota??
  • já, ætli þetta sé ekki helst í fréttum.. eitthvað tjútt um helgina með henni brynsí og maggý, taka smá frænkudjamm á þetta, klikkar ekki :) allir velkomnir með

Það styttist..

16. ágúst 2007 klukkan 13:50
Jæja, þá fer að líða að brottför. Ekki nema 2 vaktir eftir (húrra!!!), helgin og svo sest ég upp í flugvél á sunnudaginn og lendi í rvk þar sem ég mun dvelja á Hraunbrautinni með veeeel völdu fólki Svalur (ekki þar með sagt að ég hafi valið þau.. meira ég að troða mér upp á þau hehehe.. )

Verð nú samt alein í kotinu í rúma viku, svo þeir sem eru í rvk mega aaaalveg bjalla til mín og bjóða mér í kaffi og kleinur!!
Er orðin frekar stressuð fyrir þessu öllu saman, búin að fá drög að stundaskrá í hendurnar- allir tímarnir í Háskólabíói sem gefur að það verða svona 300 manns í tíma.. og ég þekki ENGANNNNNNN! Einhver sem er að fara í viðskiptafræði í hí þarna úti? Eða þekkir einhvern sem er að fara.. ekki? Saklaus  nei, hélt ekki...
En jú hvað er ég að bulla, þetta verður örugglega skemmtilegur tími, erfitt en þroskandi á maður ekki að líta á þetta þannig ? Horfa á björtu hliðarnar segir mamma mín alltaf

Hvað er annars planið um helgina? Fjallganga? Ormsteiti? Tjútt?

fyrirsögn

22. júlí 2007 klukkan 15:54

úff!!!! ég vissi aldrei að það væri svona erfitt að mega ekki borða... freistingar á hverju horni, súkkulaðirúsínur og hangikjötssalat búin að freista mín síðustu 2 tímana. er semsagt að fara í "aðgerð" á morgun á akureyri og hef ekkert mátt borða síðan klukkan 7 í morgun.. þetta er algjör pína. pottþétt mál að ég mun fara á subway eftir þetta allt saman og kaupa mér feitan bræðing takk!!

en yfir í skemmtilegri hluti
lunga um helgina, voða gaman þrátt fyrir að vera blá edrú, hef ákveðið að gera meira af því,  (eða svona þangað til eitthvað annað kemur upp á Hlæjandi) miklu betra að vera bara þreyttur en þunnur og þreyttur ;)

er svo að fara að leigja með kjartani og bergdísi í vetur, oðrin mjöööög spennt fyrir þessu, skilst að þetta sé very næs apartment fyrir minna en skít á kanil..sem er jákvætt. frábær félagsskapur ofan á þetta allt saman svo þetta verður bara gaman.

hvenar er samt fólk að fara suður?? ég er búin að skrá mig á námskeið svo ég verð að fara um miðjan ágúst.. einhver samfó? Svalur

jamm og jú

27. júní 2007 klukkan 12:49
Heyrðu ég verð víst að fara að smella inn einhverjum myndum, til að valda ekki vissum aðilum vonbrigðum ;)
Þær eru nú samt ansi fáar.. En fagrar? :)

Ég er allavega að vinna í þessu, eitthvað klikk með netið hérna heima, en þetta kemur allt saman !

"the pipe guys are working on the problem"

13. júní 2007 klukkan 15:07
Hahaha... rakst á þessa frétt af Britney vinkonu minni Spears, voða óspennandi og ómerkileg frétt í rauninni ef ekki hefði verið fyrir orð eins og "geiruslys", "nippelslip" , "klikkskinkan"og "miðvikudagsþunglyndi" sem hvarf skyndilega eftir að ég var búin að lesa fréttina.. Svalur

Annars ekki mikið í fréttum, byrjuð að vinna og allt fallið í gamlar skorður.
Komin inn í HÍ og á Bifröst, hef ekki hugmynd um það hvernig ég eigi að snúa mér í þessu máli, kostir og gallar við báða staði.. Leggst undir feld og finn út úr þessu fyrr eða síðar..
Svo er mál málanna, ball á laugardaginn með todmobil.. Ekki allir gríðar spenntir fyrir því?! Ég er allavega mjög spennt, búin að pússa skónna og til í tjútt

....Hvar er svo partýið??Hlæjandi

jæja, hætt þessu tuði, elskið og verið góð hvort við annað

Komin heim..

03. júní 2007 klukkan 20:09
Jæja, þá er maður mættur í sveitina. Fæ alltaf þessa tilfinningu þegar ég keyri inn götuna mína eftir að hafa verið lengi í burtu.. "núna er ég komin heim, smá fiðringur í magann og byrja að hugsa hvað það verði nú "geggjað gaman" í sumar. Er búin að keyra aðeins um bæinn, taka skyldurúnt í búðum bæjarins; sentrum, apótekið, skógar, söluskálinn og síðast en ekki síst kaupfélagið gamla góða. Það er nú ýmislegt breytt, esso orðið n1 (haaaa??) og komin golf búð.. Fullt af nýjum húsum og þegar ég tók rúntinn þekkti ég ca. 10% af fólkinu sem ég hitti.. ekkert grín.
Samt eru Egilsstaðir alltaf eins. Ekki margar sálir á ferð, en svo breytist þetta allt um helgar, þegar helmingjur austurlands og kárahnjúkamenn sækjast saman á stöðum bæjarins.. Mér til mikillar gleði búið að opna Valaskjálf og býð ég mjög spennt fyrir næsta balli. Og talandi um ball, ætlaði að sýna mig og sjá aðra á balli á Eskifirði í gær, var búin að dressa mig upp og fá mér eitt stykki bjór og til í slaginn.. En neinei, haldiði ekki að ég hafi ekki barið sofnað og vaknað fyrst kl 10 í dag..Algjör lúði. Eða eru þetta merki um að ég sé orðin svona gömul.. Óákveðinn

En eins og það er nú alltaf ofsalega gott að vera komin heim og hitta fjölskyldu og vini þá sakna ég nú Köbens og hans Anders minns ofsalega mikið..!!

Er annars komin inn HÍ, voða fullorðin eitthvað! Svo er ég að bíða eftir svari frá skólum í Kaupmanahöfn, voða spennandi allt saman..

Jæja, held að þetta sé orðið gott.. vildi bara aðeins láta heyra frá mérBrosandi

karnival og hvítasunnuhelgin..

29. maí 2007 klukkan 10:25
.. er yfirstaðin. góð helgi með samba, salsa, mambó, trommuslátti, ekta dönsku mömmumat heima hjá anders, belgískum vöfflum og candy floss, spilakvöldi og bjór.. semsagt frábær helgi í alla staði og fínasta afslutning á dvölinni hér í kóngsins!
Er hægt og rólega byrjuð að pakka, sé engan veginn fyrir endan á öllu þessu dóti sem ég er búin að sanka að mér, ætli það fjúki ekki nokkrir 1000kallarnir á flugvellinum.. Óákveðinn

er að setja myndir inn frá helginni, endilega kíkja Glottandi

hilsen jónína

20.maí

20. maí 2007 klukkan 17:56

ég er alltaf að verða meira og meira tæknivæddari hérna í útlandinu og er nýbúin að fjárfesta í splúnkunýrri og flottri myndavél. Get nú ekki verið minni manneskja en það að búa til eitt stykki myndasíðu! versgú Svalur 

joninabra.myphotoalbum.com

Klukkan